Ég er sjúk í að gera eitthvað fyrir íbúðina þessa dagana. Síðan við fluttum inn erum við búin að gera helling en það á enn eftir að ganga frá t.d. ljósa og gardínumálum og gera íbúðina svolítið persónulegri. Það sem við erum spenntust fyrir akkúrat núna er samt að gera ganginn aðeins skemmtilegri. Núna er nákvæmlega ekkert að gerast þar. Ég sé fyrir mér kommóðu/skent, fullt af myndarömmum, langa og mjóa mottu og flottan spegil.
Ég er að deyja mig langar svo í þessa hérna:
Veit einhver hvar ég ket komist að því hvað þessi kostar + hver hannði þetta?
Við tókum strætó niður í bæ í dag til þess að kanna hvað ein kommóða sem við sáum í Nordiska Galleriet kostaði. Við mundum bæði eftir hvað hún var sjúklega töff (svolítið lík þessari hér að ofan) en okkur minnti að hún hefði verið svo fáránlega dýr að við hugsuðum ekki um það meir.
Anyway... þegar við komum í búðina kom í ljós að hún kostaði rúmlega 70.000 sænskar (einmitt.... 70.000 x 17,8 = 1.246.000 isk !!!!). Akkúrat sú upphæð sem við ætluðum að spandera í kommóðu á ganginn. En svona er ég því miður... yfirleitt er það sem að mér finnst sjúklega fallegt nákvæmlega jafn sjúklega dýrt! Ég ætla að kenna öllum þeim klukkustundum sem ég hef varið í Spaksmannsspjörum um þetta. Ég bara spotta gæði úr kílómetra fjarlægð! Já og svo ætla ég líka að kenna mömmu pínu um þetta, hún á auðvitað bara of falleg húsgögn.
En annars fer að koma að því að ég setji myndir hingað á bloggið úr íbúðinni... bara nokkrir hlutir í viðbót og svo er ég til í að deila með netheimum.
Vá sjúklega flott kommóða, en því miður veit ég ekki hver hannaði hana. ég er einmitt mikið að spá í forstofunni hjá mér núna og vantar eitthvað sniðugt til að leggja frá sér lykla, veski og þess háttar. Er með ákveðna mynd í huga en hef ekki fundið neitt henni líkt, kannski maður fari bara að taka upp hamarinn!
Posted by: Klara | 03 október 2009 at 19:12
Ég er einmitt búin að vera svo hrifin af þessari kommóðu í nokkur ár og reyndar bara öllum kommóðum sem eru með svona skemmtilegum skúffum.
Ég veit ekki til þess að þessi kommóða sé fáanleg neins staðar og ef svo er þá kostar hún án efa einhvern heilan helling.
Sá sem smíðaði þessa kommóðu safnaði saman skúffum sem honum þótti fallegar og smíðaði síðan utan um þær. Þannig að ef að maður hefur aðgang að sniðugum flóamörkuðum þá er bara um að gera að safna flottum skúffum og láta smíða utan um þær fyrir sig. Þá áttu líka eitt stykki einstaka kommóðu.
Posted by: Arna Rut | 04 október 2009 at 18:18
Æ sorry...ég er nú bara eitthvað að bulla.
Tékkaðu á þessu http://www.wisdesign.se/news/-.aspx og sjáðu hvort þú finnir eitthvað út úr þessu.
Posted by: Arna Rut | 04 október 2009 at 18:21
Síðan hjá þeim er ekkert smá flott. Fullt af dóti sem mig langar í.
En ég sá kommóðuna sem að kostaði eina og hálfa milljón á síðunni hjá þeim svo ég get rétt ímyndað mér að þessi kosti eitthvað svipað. Ég er að melta það að breyta geymslunni í kommóðugerðarherbergi :-)
Posted by: Margrét Rós | 04 október 2009 at 20:15