Mér finnst mjög skrítið að vera í lokaskilum í skólanum í janúar. Heilinn á mér er bara ekki forritaður fyrir þetta og mér finnst næstum eins og nýja árið komi á mánudaginn þegar ég skila lokaritgerðinni minni.
Ég er þess vegna ekki búin að setjast niður og skrifa niður nein "alvöru" markmið fyrir árið né líta yfir farinn veg, þ.e.a.s. árið 2010.
En hér koma litlu áramótaheitin mín:
1. Drekka meira te. (Ehhh enn ekki búin að hella mér upp á svoleiðis á þessum 13 janúardögum).
2. Fara fyrr á fætur. Hér er s.s. markmiðið að fara alltaf á fætur klukkan sjö á virkum dögum, hvort sem ég er á leið í tíma, vinnu eða ekki. Þetta hefur gengi ágætlega hingað til.
3. Ekki mæta of seint... þetta er hræðilegur ávani sem að maður sér hversu illa er liðinn þegar maður býr hér í Svíþjóð. Alveg fáránlegt að vera alltaf 2 mínútum of sein, hvort sem það er hittingur með vinkonum, tími í skólanum eða læknisheimsókn.
4. Prófa tvær nýjar uppskriftir í mánuði og blogga um þær (já í fyrra var það ein grænmetisuppskrift á viku.. það gekk svona líka vel!).
Gaman, gaman, þetta finnst mér dásamleg áramótaheit, allt í áttina að því að vera A+ manneskja ;)
Posted by: Eva María | 13 janúar 2011 at 15:45