Einu sinni bloggaði ég um þessa kommóðu. Og svo sá ég verðmiðann og fékk áfall.
Svo ég gerði mína eigin mini útgáfu. Ég keypti PS kommóðu frá Ikea (PS er nota bene umhverfisvæna línan frá Ikea).
Upphaflega var planið að mála nokkrar skúffur og veggfóðra einhverjar en eftir að hafa tekið nokkur húsgögn í gegn er ég búin að komast að þeirri niðurstöðu að húsgögn sem nú þegar er búið að vinna sjúskast mjög hratt þegar þau eru máluð.
Svo að ég hætti við og ákvað bara að kaupa fínar höldur í Tekk Company á Íslandi og láta það duga. Og my oh my hvað ég er ánægð. Svo að gangurinn er allur að koma til! Mikið er það gaman. Auk kommóðunar (sem er búin að vera á ganginum í þó nokkurn tíma með upprunalögu höldurnar) fjárfesti ég um helgina í nýrri persneskri mottu... sem er reyndar ennþá með miðanum á svo ég er enn að melta þetta.
Hér kemur nýja útgáfan:
Fínt.. eller hur?
Mjög flott!
Posted by: Klara | 28 janúar 2011 at 10:11
Mjög fallegt Marra mín :) Svo gaman að lesa svona blogg :-)) Knúsó!
Posted by: sirrý | 28 janúar 2011 at 10:15
Vá - Fín er hún.
Sniðuga kona !! x
Posted by: Elísabet Gunnars. | 28 janúar 2011 at 10:39
Like á þetta :-)
Posted by: Helga | 28 janúar 2011 at 11:26
Very nice :)
Posted by: Jónína | 28 janúar 2011 at 13:07