- Það er farið að hlýna í Stokkhólmi. Ég var í hnébuxum og hnésokkum í dag sem var ótrúlega skemmtileg tilbreyting.
- Það er föstudagur og ég hef sterklega á tilfinningunni að þessi helgi eigi eftir að vera frábær.
- Ég byrjaði á Ashtanga yoganámskeiði í gær. Nú mæti ég einu sinni í viku í einn og hálfan tíma í senn ásamt sex öðrum í frábæran yogatíma í þar næsta húsi. Vá þetta var magnað. Og ég held að yogað sé ástæðan fyrir því að ég svaf eins og steinn í nótt. Ég eignaði mér líka nýju dýnuna hans Einars, vá hvað það munar miklu að gera yoga á almennilegri dýnu.
- Allir í Stokkhólmi ganga þessa dagana í forljótum Bally slabb stígvélum. Ég skil ekki hvers vegna fólk kaupir sér ljóta skó fyrir tug þúsúndir króna. Hér er eins og þessir skór fylgi með kornflex pakkanum, svo margir eru í þessu. Úff!
- Í kvöld er ég að fara í nudd. Einar gaf mér gjafabréf fyrir ári síðan og ég ætla að nota það í kvöld. Luxury spa massage hljómar ekkert allt of illa.
- Að nuddinu loknu ætlum við Einar að fara á grænmetis veitingastað hér í nágrenninu og því næst á Up in the Air. Myndin er búin að fá svakalega dóma svo að þetta verður spennandi.
- EM veldur mér vandræðum. Mega Íslendingar halda með Svíþjóð í handbolta? Ég held auðvitað fyrst og fremst með Íslandi en langar að halda næst með með Svíþjóð. Má það?
- Ég veit ekki hvað er að mér. Kannski er Stokkhólmur að hafa þessi áhrif á mig en ég fíla Bad Romance með Lady GaGa í tætlur. Ég held að það sé heldur ekki í lagi.
Recent Comments