Síðast árið er ég búin að vera að reyna að taka mig á hvað varðar snobb fyrir snyrtivörumerkjum. Einu sinni (og stundum ennþá) var ég hrikaleg! Gat ekki keypt neitt nema það væri helst það dýrasta í búðinni og fanns allt sem hét t.d. Nivea argasta drasl.
Síðan ég fór að hafa meiri áhuga á umhverfinu hef ég spáð meira í raunverulegu innihaldi snyrtivara en ekki látið markaðssetninguna glepja mig. Ég hef komist að því það eru ekki öll "náttúruleg" merki sem ég fíla. En til að vera sjálfri mér samkvæm hef ég samt ekki keypt neitt nema að hafa klárað eitthvað annað á undan, líka það sem ég var ekki alveg að fíla.
Áður en ég fór til Indónesíu féll ég all svakalega. Ég datt í Kanebo, svona líka rosalega. Ég hef oft notað þessar vörur og finnst þær góðar en blöskraði samt verðið þegar ég keypti mér krem og andlitsvatn þarna í júlí, auk þess sem ég keypti mér líka ferðasize hreinsilínu (sem ég get ekki sagt að sé beint góð fyrir hvorki náttúruna né budduna... en mjög góð fyrir bakpokaferðalanga).
Það er svolítið síðan ég kláraði ferðahreinsilínuna og er búin að vera að nota hálfpartinn ekki neitt nema þvottapoka og augnhreinsi í tvær vikur. Á leðinni heim frá Íslandi í síðustu viku ætlaði ég bara að vera grand og kaupa mér hreinsilínuna frá Kanebo full size í (algjörlega sprungin á limminu!) en fékk þvílíka áfallið þegar ég sá verðið. Þetta eru s.s. tvö item, annað var á 3700 og hitt 4þúsund ogeitthvað!! Er ekki allt í lag? Já ég sagði s.s. nei takk og fór í The Body Shop í gær. Já í alvöru! Margrét Rós fór í The Body Shop og keypti hreinsimjólk, andlitsvatn og hreinsisápu. Þetta gerðu 170 kr sænskar samanlagt (2890 isk). Í augnablikinu á The Body Shop í Svíþjóð nefninlega 30 ára afmæli svo það er 30% afsláttur af vörum sem voru einu sinni best sellerar en hafa ekki verið fáanlegar í þónokkur ár núna.
Ég er þvílíkt ánægð með þetta, húðin mín er hrein og fín og ég lét ekki snobbið setja mig á hausinn! Ekki nóg með það heldur eru allar umbúði Body Shop úr 100% endurunnu plasti, í vörunum sem ég keypti er lífrænt, fair trade aloa vera og það er ekki spanderað svo minnsta sem einni trjágrein í auka pappa pakningar utan um brúsann sjálfan - enda er hér um að ræða fyrirtæki með marktæka samfélags- og umhverfisstefnu.
Ég held að þetta hafi verið stórt skref í átt að bata...
LOKSINS! þú ert svo mikill snilli! :))) Mig langar svo að prufa kanebo, hugsa að ég fjárfesti í þessari hreinsilínu svona hægt og rólega næstu árin. Eitt stk. í jólagjöf, eitt í afmælisgjöf etc etc :)
Ég hef keypt ýmislegt í B.S. Tea Tree andlitsskúbburinn er massa góður t.d
gaman að lesa :*
Posted by: Sirrý | 22 september 2009 at 11:09
vá ég er aaaalveg svona líka, snyrtivöru snobb, enda vann ég í snyrtivörubúð og var alvarlega smituð...ég er farin að nota núna lífræna kókosolíu til að þrífa á mér fésið og smá hreinsi með og það er æði...mæli með því:) besti augnhreinsir sem ég hef prófað...
annars er hreinsilínan frá Kanebo er samt mjög góð upp á það eru 3 þrep og ég hef séð sannanir fyrir virkninni...annars held ég að það sé bara málið að vera gagnrýninn neitandi..sumt dýrt er gott og annað drasl..fullt í body shop sem er æðislegt...
mæli líka með L'occitane, 100% náttúruleg, lífrænar vörur sem eru líka budduvænar..(miðað við dýru merkin allavegana)
Posted by: Elin | 24 september 2009 at 21:24